laugardagur, 1. ágúst 2009

Ævintýrin gerast áður en ég er lentur til Huntsville

(Ég með börnum Scott Pollards í morgun)

Ruglið hjá mér var ekki lengi á leiðinni. Cuttum á allt mússímúss og basic information. Eftir mikla töf er ég nýlentur í Memphis frá New York og er á hlaupum til að ná næsta flugi til Huntsville. Ég hleyp yfir allan flugvöllinn (drullu snöggur) bara til þess að heyra það að flugi mínu til Huntsville hefur verið aflýst. Ég hafði aðeins eitt val, gista á hóteli í Memphis og fara með fyrsta mögulega flugi daginn eftir, sem ég fékk ekki einu sinni að vita hvenær það yrði.

En ég er auðvitað svo sniðugur og kann að finna leiðir á vandanum þannig að ég ákvað að byrja að tala við fólkið sem var á leið í sama flug og ég til Huntsville. Ég talaði við marga og spurði "Hey, you from Hunstville?" - "Alright, how do you like it" - "Yeah im from Iceland, im going there now for the first time" - "I will go to UAH and stay there for the next 4 years". Þetta gekk vel, fólkið var að fíla þetta. En það var einn maður sem var að fíla að ég væri frá Íslandi og ég væri í UAH Chargers körfuboltaliðinu meira en hinir. Svo heppilega vildi til að sá maður er Rocket Launch Manager hjá NASA. Sá gaur var auðvitað ekkert að fara að bíða eftir næsta flugi heldur hafði NASA útvegað honum Rental Car sem hann gæti bara keyrt heim til sín. Auðvitað bauð maðurinn mér um að koma með sér.


(Scott Pollard - Wendy konan hans og börn)

Þessi maður sem heitir Scott Pollard var mjög nettur... ég fékk hann til þess að reyna að ná í þjálfarana mína í UAH sem voru að koma að sækja mig en það gekk illa. Ég keyrði þess vegna í 4 klukkutíma með honum í Huntsville og var því kominn þangað um 1 leytið. Á leiðinni urðum við hinir bestu félagar, hann sagði að sonur hans væri í körfubolta og hann ætlaði að koma með þá á leiki þegar ég færi að spila með liðinu. Við töluðum saman þarna í 4 klukkutíma þangað til við komum heim til hans. Hann bjó í mjög nettu stóru húsi þar sem konan hans var búin að búa um mig í einu gestaherberginu þarna.

Um morguninn vaknaði ég svo og þau cookuðu einhvern eggjarétt fyrir mig og hann keyrði mig fyrir utan UAH gymmið. Þar fundum við menn þarsem við náðum í þjálfarana. Þeir voru mjög hissa og þeim fannst þetta vera alveg ruglað að ég væri mættur til Huntsville því þeir vissu ekkert hvar ég var.
Svo gengur sagan um bæina og ég símtal frá góðvini okkar allra í heiminum Tyler Dunaway sem spilaði með FSu og hann segir ,,Man Arni, you cant be doing that... that stuff might kill you here in the United States" og var hann voðalega protectivur á mig. Svo segir hann við þjálfarana ,,Yeah you know, thats normal to do in Iceland so he just doesnt know it might be dangerous".
Þetta fannst mér voða fyndið hjá Tyler. En ég treysti allaveganna Scott betur eftir að hafa talað við hann og heyrt hann tala við konuna sína og hann var búinn að skilja eftir message (Þeir svöruðu ekki) til Coach Acuff og Coach Ivey um að ég væri með honum, gaf upp nafn og símanúmer. Ég treysti þessum manni betur en ég treysti því að fara á einhvað random hotel í Memphis og vita í rauninni ekkert hvað ég ætti að gera. Svo var hann ekki með byssu og ég hleyp pottþétt hraðar en hann!


Allavega, ég og Scott virðumst vera orðnir fínustu félagar og hann ætlar að bjóða mér í mat með fjölskyldu sinni fljótlega. Ég chillaði aðeins með börnunum hans og ég náði aðeins að skemmta mér með þeim og það var mjög gaman. Ekki slæmt að þekkja svona mikinn valdamann en hann stjórnar um 40-50 súper snillingum sem gera Rockets hjá Nasa.
Í flugvélinni hitti ég líka annan mann sem ég náði contact við. Sá maður vann Student Emmy Awards(Huge verðlaun yfir allt USA) fyrir bíómynd sína og hann var einmitt að koma frá Los Angeles frá stórri kvikmyndahátíð þar. Hann er í einum besta kvikmyndaskóla heims þar sem aðeins 5 komast inn af þúsundum og sagði hann að hann væri á leið til Flórida að klára síðustu önn sína í skólanum. Ég sagði honum auðvitað frá handritum mínum og var hann mjög spenntur. Hann gaf mér e-mailið sitt og sagðist ætla að hjálpa mér að koma handritum mínum á framfæri ef honum finndist hugmyndirnar jafn góðar og mér finnst þær. Hann gaf mér líka fullt af tips og sagðist ætla að senda mér myndirnar hans hingað til mín á DVD. (Hann sat við hliðiná mér í flugvélinni). Maðurinn heitir Khen Shalem og er Writer/Director.

Í morgun sótti Coach Ivey(Assistan coach) mig og sýndi mér allan skólann og allan bæinn í rauninni. Svo fór ég að borða með nokkrum liðsfélögum. Fyrstu dagana hér bý ég í einu húsi þar sem liðsfélagar mínir búa. Drulluflott íbúð, með eigin herbergi, flatskjár, allar tölvur, sundlaug úti og nettleiki. Þegar ég skrifa þetta er klukkan um 5 í Huntsville og ég er búin að fara að versla með liðsfélögum mínum og ég veit ekki hvað tekur við í kvöld.

Það eru ekki allir leikmennirnir komnir á campus og alvöru pick-up bolti verður ekki fyrr en einhverntímann í næstu viku en við sem erum komir förum væntanlega og spilum 3 on 3, 1 on 1 og lyftum þangað til. En það eru engar æfingar þessa helgi sem er frábært fyrir mig sem er að klára að jafna mig á örlitlum handarmeiðslum og smá skurði á tá sem er að gróa. Ætti að vera perfect á mánudaginn og ready to go.
P.S Í gærkvöldi fóru þessir liðsfélagar mínir eitthvað að partýast. Þeir biðu á flugvellinum og ætluðu að taka mig með út clubbin. Hefði verið frekar mikið rugl á fyrsta degi en just missed it. Veit ekkert hvað gerist í kvöld, en Árni Ragg er ready fyrir dance off.

Plug Plug

9 ummæli:

  1. Hildur Heimisdóttir2. ágúst 2009 kl. 12:20

    Vá Árni! þvílíkt ævintýri marrrr!!!! Ji hvað ég fékk í magann að lesa að þú hafði farið í 4 klst rúnt með "einhverjum" gæja frá NASA... Hversu margir hefðu getað skáldað það að vera að vinna hjá NASA?! En greinilega að þetta fólk var ljúft:) úfff... litli minn, sem hefur svo lítið séð hinn STÓRA heim:) hahhaha Frábært að það er vel tekið á móti þér og að öll aðstaða sé frábær!!! Mömmu þinni verður eflaust létt að heyra frá þér, kom og sótti myndavélina til mín vængbrotin greyjið eftir að hafa skutlað þér á völlinn... Hittum líka Pálmar í gær í litla húsdýragarðinum á litla Íslandi, hann var hress:) Biðjum að heilsa héðan frá Hafnarfiðrinum og höfum fulla trú á því að þú massir þetta!:) Kveðja, Hidda,Gummi, Ástrós Lilja og Heimir Berg

    SvaraEyða
  2. Hehe takk kærlega fyrir það Hidda. Þú ert að standa þig vel í secret investigation starfinu þínu fyrir mig á Íslandi! Bið að heilsa fjölskyldunni ;)

    Kv. Árni

    SvaraEyða
  3. Þú verður að passa þig á þessum könum Árni, þetta er ekki eins og á litla Íslandi þar sem allir eru góðir við alla, þú verður að læra að skilja það að þarna úti eru sumir vondir. (je)

    SvaraEyða
  4. Hahahah þú ert algjör snilli!!! ;) respect
    Kv.Nadia

    SvaraEyða
  5. Cool síða Árni


    Kv. Atli

    SvaraEyða
  6. hahah..shiit! árni þarna varstu heppinn! En vá ævintýri littli minn :D
    gott að vita að þú ert kominn heill á húfi :D
    kv kidda ;D

    SvaraEyða
  7. cool HJÁ ÞÉR
    KVEÐJA SVENNI

    SvaraEyða
  8. Bleeesaður Árni:D djöfull ertu flottur maðurxD þetta er rugglaður staður ég væri alveg til í að fara þangað eihvertíma. En skemmtu þér úti og gangi þér vel kv. Alexander:D

    SvaraEyða
  9. Arni, astaedan fyrir ad flestir radmordingjar na ad drepa svona mikid af folki er ekki afthvi ad their labba um med old school hokki grimu svo enginn thekki tha... their lita ut eins og besta folk, giftir, i vinnu og ganga um i polo bolum. Watch out

    SvaraEyða