
Já það er rétt... Fyrsti Apríl.
Þegar ég skrifaði þetta blogg hugsaði ég: ,,Neiiii... þetta er alltof lélegt, það á engin eftir að falla fyrir þessu" - I was wrong.
Þegar ég skrifaði þetta blogg hugsaði ég: ,,Neiiii... þetta er alltof lélegt, það á engin eftir að falla fyrir þessu" - I was wrong.
Ég er með skrifleg sönnunargögn í gegnum facebook/msn/e-mail/comment uppá að hafa náð rúmlega 100 manns með þessu. Þetta grín fórsemsagt langt framúr mínum væntingum. Þannig ég þakka ykkur öllum yndislegu vinum mínum fyrir að hafa skemmt mér svona vel í gærkvöldi.
Ég ætla að gefa nokkrum mönnum verðlaun fyrir frammistöður sínar í að falla fyrir aprílgabbi.
Ég ætla að gefa nokkrum mönnum verðlaun fyrir frammistöður sínar í að falla fyrir aprílgabbi.

#1 Emil Þór Jóhannson - Ég var búin að ráða Emil Þór sem samningamann minn til þess að koma mér inní Snæfelsliðið í úrslitakeppninni. Ég náði Emma um 1 leytið að nóttu, til þess að hringja í Inga. Hann lofaði mér að hringja í Inga um fyrramálið, en vegna einhverra ástæðna þá ákvað hann að tala bara við Inga á æfingu. Æfingin var klukkan 6 en klukkan 4 var Emil því miður búin að fatta hvaða dagur var.

#2 Vésteinn Sveinsson - Vegna þess að ég og Vésteinn erum fáranlega tight vinir þá þorði ég að ganga lengra með þetta djók við hann en aðra. Ég átti persónulegar samræður við hann á msn þar sem Vésteinn var alveg brjálaður öðrum megin, á meðan ég grenjaði úr hlátri hinumegin. Setningar eins og: "Nei... nú er greinilega allt falt í þessum heimi" og allskonar bölvanir komu í samtalsglugga okkar frá honum. - En vegna þess að Vésteinn er töffari þá játaði hann sig sigraðan þegar ég sagði honum loksins frá því að þetta væri apríl gabb, og hann harðbannaði mér svo að taka þetta útaf síðunni.

#3 Pálmar Ragnarsson - Pálmar bróðir var kannski ekki lengi að fatta þetta, en þegar hann lýsti fyrir mér þessum 15 sekúndum sem hann trúði þessu, þá hreinlega dó ég úr hlátri. Hann sagðist hafa verið "ringlaður" og hefði fengið svima. "Afhverju talaði hann við Bárð áður en hann lét okkur vita" voru hugsanir sem hann skyldi bara ekki í.


#5 Siggi Haff - Siggi Haff er ákveðin týpa sem maður bara veit að maður má reyna að gabba alvarlega, vegna þess að hann sjálfur er mjög mikið í gríninu. Ég átti gott spjall við Sigga um körfubolta, og tjáði ég honum að nú væri ég farin að hugsa um körfubolta á allt öðruvísi hátt, mig langaði bara að byrja uppá nýtt, fara í 2.deildina og byggja nýtt félag upp og sæi þess vegna Laugdæli sem fullkomin stað fyrir mín markmið. Ég sannfærði hann til að tala við þjálfara sinn og var Siggi ákveðin í að reyna sitt besta fyrir mína hönd.
Annars vona ég innilega að engin hafi tekið þessu of alvarlega og að allir sem féllu fyrir þessu geti tekið þessu sem léttu apríl gabbi.
Munið bara þetta; Árni Ragg er ekki að fara neitt... ég er Charger for life og þannig er það bara.
Don't hate the player... hate the game.
Don't hate the player... hate the game.
Loves
Ég er ekki frá því að þetta hafi verið 1.apríl gabb ársins !! :)
SvaraEyðaTil hamingju meistari...
Kv.
Árni Þór
Algjör snilld frændi.... Ég var alveg brjáluð út í kanana í svona 7 sek áður en ég kveikti á perunni :) Sammála nafna þínum, þetta var topp gabb!!
SvaraEyðaGangi þér vel í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur!
Kv.
Gerða frænka
Sammála, þetta var mjög gott grín. Ég var í hálfsjokki þangað til Kiddi kveikti á perunni og tengdi dagsetninguna við bloggið.
SvaraEyðaHaha náðir mér í 30 slæmar sekúndur þarna.... þær voru ekki þægilegar get ég sagt þér. Vil samt taka fram að ég var ekki gabbaður 1. apríl heldur svona 4 mínútur eftir miðnæti þann 31. mars áður en nokkrar pælingar um þennan dag væru coming up!
SvaraEyðaHahah finnst þessi viðbrögð samt öll of góð, Emmi að ætla að hringja í Inga þjálfara, Vésteins kannski svoldið gróft en hann harkar það vonandi af sér, með Pétur Guðmunds alger snilld og gaman hvað hann hafði gaman af því líka. Og ekkert smá flott hvað hann var til í að hjálpa með þetta, ekkert smá ánægður með hann! Og ný framtíð með Laugdælum er svo best hahah... love it
-PR
haha Árni þú ert æði!
SvaraEyðakv.Anna María
hehehehe mér fannst þetta skemmtilegt grín, svolítið nasty fyrir suma en gott svona eftirá. var pínu pissed yfir þessu fyrir þína hönd í einhverjar sek. svo tók við hugsanagangur um það hvort það væri kominn 1.apríl hjá þér svona tímabeltis séð :) ég ákvað að þú værir að grilla í liðinu.. þar sem að ég þekki þig þannig að þér þykir það ekkert leiðinlegt að rugla í fólki og að það gæti bara ekki staðist að svona fréttir kæmu akkúrat á þessum degi :)
SvaraEyðagangi þér vel, sé vonandi glitta í smettið á þér þegar þú kemur heim í sumar
kv. Karen frænkz
Hehe já takk fyrir það frænka! Þú þekkir strákinn alveg út í gegn, það er engin spurning :)
SvaraEyðaEngin spurning við og hundarnir tökum gott chill í sumar!