þriðjudagur, 4. maí 2010

4 Video



Hérna eru 4 video sem ég ákvað að uploada á youtube. Þau eru frá mismunandi tímum.

Hér er eitt úr spring break sem sýnir snilli míni í Surfi. Þarna var ég að mastera art surfsins á mínum fyrsti degi með brettinu. Í sannleika heimsins þá er þetta ein mín besta tilraun þennan daginn... getið ýmindað ykkur hin skiptin.

#2
Núna þessa helgi fór ég á Akon í Birmingham (Fjölmennasta borg Alabama). Ég fór með James Smith, Xavier Baldwin og Jason Smith, en þeir eru einmitt frá Birmingham. Jason Smith reddaði mér einhvernveginn frítt inn, en hann er alveg maðurinn í þessari umtöluðu borg. Þetta voru bestu "tónleikar" sem ég hef farið á... alveg vel klikkað stuff.



#3
Akon var alveg með þetta... ekki lengi að rífa sig úr að ofan. Bað svo alla gaurana um að rífa sig úr að ofan... maður var ekki lengi að kasta af sér bolnum.



#4
Alabamskar samræður um Spartacus. Bestu þætti ever made í þessum heimi. Ég setti þetta myndband inn aðallega vegna þess að þetta gefur ágætis mynd af því hversu fyndin Xavier Baldwin er, en maðurinn er alger snillingur. Ég á eftir að ná honum í allskonar öðruvísi gírum sem hann dettur í, en hérna erum við með sophisticated X sem reynir að sannfæra samherja sína um ágæti þáttanna. Ég reyndi að vera laumulegur að taka þetta upp en eftir smá stund held ég að allir hafi fattað hvað var í gangi. Þetta var tekið upp í matarboði fyrir utan heimili forseta UAH. P.S þetta myndband hefur ekkert fáranlega sick merkilegt í gangi, ólíkt öllu öðru sem gerist á þessu bloggi.

2 ummæli: