laugardagur, 29. ágúst 2009

Að nýta tækifærið og njóta þess

(Þar sem ég var í myndaskorti þá ákvað ég að taka sjálfsmynd rétt í þessu - Eins og sést þá er ég ennþá vel yfir meðallagi fallegur)

Ég get með sanni sagt að ég sé að njóta þess til botns að vera körfuboltaleikmaður/nemandi í UAH.

#1 Körfubolti

Að æfa hér er frábært. Ég get ekki sett útá neitt ennþá. Þjálfararnir eru duglegir að tala við okkur leikmennina. Þegar þeir tala um markmið liðsins og hvað liðið snýst um þá líður mér fáranlega vel. Þjálfarinn hér heitir Lennie Acuff og hefur verið að þjálfa í mjög langan tíma. Hann virkar sem mjög metnaðarfullur og klár þjálfari. Þegar hann hefur verið að tala við liðið þá fæ ég gæsahúð. Það sem að hann gerir er að hann setur dæmið nákvæmlega upp fyrir þér og segir þér í hvaða kassa þú átt að vinna eins og t.d;

- Hvernig þú átt að spila og haga þér inná vellinum
- Hvernig æfingar fara fram þegar honum er ekki leyft að vera á svæðinu
- Hvernig þú kemur fram við fólk utan vallar
- Hvernig nemandi þú átt að vera
- Hvernig persóna þú átt að vera
- Og margt margt fleira

Ég ætla ekkert að fara í detail útí þetta en ég get lofað ykkur því að hann sem þjálfari er virkilega flottur, klár og reynslumikill.

Auk þess boðaði hann mig á fund um daginn eftir að hafa horft á æfingarnar og sagði mér nákvæmlega hvar ég stæði í hans augum og hvernig hann ætlaði að nota mig innan liðsins bæði núna og framtíðinni. Hann sagði mér frá öllu sem honum líkaði við í mínum leik og talaði svo um þá hluti sem hann vildi að ég myndi bæta. Að tala við hann er virkilega flott en þarna er góður maður sem veit nákvæmlega um hvað hann er að tala.
Honum til aðstoðar eru David Ivey og J.P (Jason Parrish). Báðir virka þeir virkilega metnaðarfullir og klárir gaurar en sá fyrrnefndi spilaði sjálfur fyrir skólann hér áður fyrr. Þeir sjá um margt í þjálfuninni, gera það mjög vel og eru virkilega flottir. Auk þess eru þetta lifandi menn - Jákvæðir, hressir og skemmtilegir.

(Andy Donovan - Connor Blasi - Jamie Smith - Arni Ragnarsson -Big Z - Fridays)

Að æfa hér hefur verið mjög gaman. Æfingaplanið okkar er svona eins og er:

6x í viku: 90-120 min hver æfing = 5 on 5 körfubolti
- Að spila 5 á 5 svona sterkan og samkeppnishæfan körfubolta er virkilega bætandi. Eftir að hafa spilað svona mikið hér þá finnst mér þetta vera hlutur sem ég hef verið að vanmeta síðustu ár.
3-4x í viku: Lyftingar
- Fyrst tökum við gott lyftinga session svo enda allar lyftingaæfingar á svokölluðu ,,Crossfit" workouti þar sem aðal tilgangurinn er að gera útaf við/reyna á þolmörk þín. Þetta eru erfiðustu æfingar sem ég hef nokkurntímann gert.
2x í viku: Einstaklingsæfingar
- Einstaklingsæfing þar sem 3 aðalþjálfarar vinna með þér í því að bæta þig í sem þú þarfnast mest.

Auk fer ég á nánast hverjum virkum degi og tek góða skotæfingu. Annaðhvort með skotvélinni eða í Fitness Center sem er almennt íþróttahús.


(Tyler Hanback - Þetta gerum við þegar við erum ekki í skólanum)

#2 Skólinn

Tímarnir sem ég er í eru mjög áhugaverðir. Mér finnst í rauninni alltaf gaman að taka upp námsbækurnar og læra. Námsefnið er yfirleitt mjög spennandi og ef það er ekki spennandi þá er spennandi að vinna að því markmiði að fá 10 í næsta prófi.

Ég setti mér ákveðin markmið þegar ég kom hingað og eitt þeirra var að vera ekki bara að læra til þess að komast í gegnum þetta. Heldur virkilega læra og hugsa hvernig ég geti notað þessa vitneskju í því sem ég ætla mér að gera. Finna rétta fólkið og skapa sambönd sem ég get notað í framtíðinni þegar ég ætla mér að fara að framkvæma ákveðna hluti.

Ég var ekki lengi að huzla mig inná réttu staðina því mér tókst að skríða inná skrifstofu Cheryl Plaza sem er Head of the Business Advisors. Þar reyndi ég hvað ég gat til þess að sannfæra hana um að ég væri fáranlega gáfaður og það heppnaðist bara mjög vel. Sérstaklega þar sem ég hafði lesið einhverjar bækur sem hún hafði lesið og ég gat spjallað við hana um bækurnar og notað orð úr þeim sem aðeins eru notuð í þessum bókum(Stephen Covey - Habits bækurnar) og virkaði hún mjög impressed á því. Endaði þetta á því að við spjölluðum um allt frá námi til eiginmanns hennar og yngri ára og komst ég að því að þessi gella er bara alger snillingur.

Hún tróð mér svo inní tíma hjá bestu kennurunum hérna og er ég henni mjög þakklátur fyrir það. Kennarinn sem kennir mér Business/Legal Environment heitir Marc McDaniel og hann vinnur ekki fullu starfi við að kenna heldur kennir hann bara 2 tíma á viku. Klukkutíma í senn. Hann segist vera að gera þetta til að "Give back to community" en hann er virkilega öflugur lögfræðingur. Hann hefur verið lögfræðingur fyrir James Cameron sem gerði meðal annars Shrek myndirnar og Titanic. Auk þess hefur hann unnið með Bill Clinton og George Bush.

Tímarnir hjá honum eru alger snilld. Hann er ekki bara að kenna þér námsefnið heldur fer hann í allskyns hluti þar sem hann er bara að gefa fólki ýmis ráð um lífið. Cheryl Plaza sagði að hann væri besti kennari sem ég gæti fengið og ég yrði að fara til hans. Sé strax að það var rétt hjá henni.

Kennarinn sem kennir mér Managment Organization er svipað dæmi. Hann er CEO(Hæst setti stjórnandi) í stóru fyrirtæki. Undir sér hefur hann fjöldan allan af managers sem stjórna svo employes. Þeir tímar eru virkilega áhugaverðir!

Áður en ég mætti í mína fyrstu tíma þá tók Cheryl Plaza mig til kennarana og kynnti mig fyrir þeim persónulega og sagði þeim frá mér og hvað ég hefði verið að gera í lífinu hingað til. Þannig maður er kominn nokkuð vel í mjúkinn hjá þessum köllum og er ég auðvitað duglegur að vinna í því að tala við þá.

(Á svo auðvitað eftir að segja ykkur betur frá þessu öllu)

#3 Lífið

Með allar þessar æfingar og þennan lærdóm þá getur maður verið ansi mikið á manns könnu. En samt ekkert hrikalegt. Ég virðist alltaf hafa einhvern tíma á hverjum degi til þess að slappa örlítið af með liðsfélögunum og fíflast einhvað smávegis. Eins og ég hef oft sagt þá eru liðsfélagar mínir hér algerir snillingar. Mjög flottir gaurar með rétt viðhorf til lífsins. Þess vegna hef ég ákveðið að búa til nýtt efni hér á heimasíðunni sem mun heita ,,Teammates".

Þar mun ég kynna ykkur fyrir öllum liðsfélögum mínum. Ég mun þó alltaf bara taka einn fyrir í einu. Maðurinn sem ég ætla að kynna fyrst heitir Jamie Smith. Sá náungi er eiginlega bara einum of nettur. Myndir, myndbönd og kynning á honum kemur mjög fljótlega þannig að spennið beltin og fylgist með. Stuff is going down.
Að lokum ætla ég að þakka öllum þeim sem hafa verið að skilja eftir kveðjur hérna á blogginu. Það hefur komið mér á óvart hversu margir hafa verið að nenna að lesa þetta og senda mér kveðjur, en hver kveðja hefur verið að gefa manni auka kraft.

Mad loves,
Árni Ragg

7 ummæli:

  1. frábært viðhorf! :)

    kv, Helena

    SvaraEyða
  2. Arni I lovez you
    KV. Thin Kolla

    SvaraEyða
  3. Haltu áfram að taka á því kappi, gamann að fylgjast með þér. Hilli...

    SvaraEyða
  4. Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt Árni og fylgjast með lífinu þínu í Alabama. Gaman að heyra hvað það gengur vel og gaman að sjá hvað það er þroskandi fyrir þig að vera þarna í réttu umhverfi með fólki á sama leveli og þú. MAD loves :*

    SvaraEyða
  5. Vatð bara að segja hvað er gaman að lesa um þetta svakalega ævintýri hjá þér! Frábært að sjá hvað þú ert jákvæður gagnvart öllu, þetta er rétti andinn :)
    Gangi þér vel í körfunni og náminu!

    SvaraEyða
  6. Árni mundu að borða kálið þitt, það er svo rosalega mikilvægt að borða nóg kál þegar maður er í svona miklum hita og röku andrúmslofti.

    Kveðja - Pálmar

    SvaraEyða
  7. Þakka ykkur fyrir kveðjurnar! :)

    Og segðu mömmu að ég éti endalaust af káli núna og ég finni svaka mun!

    SvaraEyða