(Xavier eða "X" eftir æfingu - Þessi gaur er ekkert djók)Ég ætla ekki að ljúgja að ykkur. Að spila hérna er mun erfiðara en því sem ég er vanur. Samkeppnin er sterkari en ég hef nokkurntímann kynnst. Ég hef samt verið að standa mig mjög vel að mínu mati, en þó á ég mun meira inni. Að spila hérna gefur þér ekki neitt val. Þú bara verður að verða betri og betri. Hérna er spilaður allt öðruvísi körfubolti. Þú þarft að breyta leiknum þínum til þess að verða sem mest effective. Auðvitað þýðir það eiginlega bara að verða betri í körfubolta.
Í mínu tilviki hefur þetta forcað mér að mestu leyti í eina átt. Að treysta á hittnina. Ég hef verið að skjóta um 1000 skot á dag með skotvélinni hér hvern einasta dag. Afhverju? Því ég sé fram á að til þess að ég get orðið besti leikmaðurinn í þessu liði þá þarf ég að treysta á að hitta. Auk þess er að ég að vinna í nokkrum öðrum hlutum líka. Ég er going there. Við æfum mikið og spilum mikið 5 on 5 pickup bolta. Þetta tekur vel á og kemur manni í rugl form.
(Ég chillandi í sundlauginni fyrir utan hús liðsfélaga minna)Það eru sumir leikmenn hér sem mér finnst bara vera ótrúlegir spilarar. Sérstaklega ásinn okkar sem ég segi ykkur betur frá fljótlega. Rosalega margir leikmenn hérna eru bara svo ótrúlega smooth og lunknir. Auk þessu eru margir hérna ótrúlega hittnir og snöggir. Þetta er ekkert smá gaman. Þetta er topp samkeppni og það er ástæðan fyrir því að ég kom hingað, til þess að spila á móti góðum gaurum til að verða betri sjálfur og svo verða betri en þeir - Og það er að fara að gerast.
Ég er kominn með stundatöfluna mína. Ég er í 4 tímum:
Legal Environ/Business 211
Intensive Writing
Principles of Finance 301
Managing Organizations 301
Stundataflan mín er svona:
Mánudagar: 9:10-10:05, 10:20-11:15
Þriðjudagar: 09:10-10:05, 11:10-12:30, 12:45-2:05, 5:30-8:20
Miðvikudagar: 09:10-10:05, 10:20-11:15
Fimmtudagar: 11:10-12:30, 12:45-2:05
Föstudagar: 09:10-10:05
Ég fór í tíma í dag. Það var gaman. Þetta verður krefjandi og challenging. Það má eiginlega segja að ég hafi verið að over concentrata í tímum. Svo góð var athyglin. Ég er að fara að massa þennan skóla - 500 kall og ekkert kjaftæði.
Aðstaða: Eitt sem ég fýla geðveikt. Morgunmatur, hádegismatur, Kvöldmatur. Salat bar - Kjúklingur - Nautakjöt - Burrito - Kartöflur - Hrísgrjón - Svínakjöt - Pastaréttir - Pizzur - Hamborgarar - Franskar - Subs - Quiznos - Boozt bar - 10 tegundir af gosi - 3 tegundir af ávaxtasöfum og vatn. Svo eru kökur, ís, búðingar og allskonar eitthvað shit. Allt cookað/bakað fresh á hverjum degi og mismunandi stuff á hverjum degi. All you can eat. Everyday. Ókeypis. Maaan á þetta eftir að verða gott fyrir mig íþróttalega séð eða hvað.
(Jaime Smith - Óeðlilega nettur gaur)Fólk: - Herbergisfélagar mínir eru komnir. Þeir eru báðir um 2,04-2,08 cm. Báðir eru drullunettir gaurar og miklir töffarar. Þeir eiga sportbíla og eru strax byrjaðir að pimpa staðinn upp. Við fáum mikla athygli hvert sem við förum, þá aðallega vegna hæð þeirra og er fólk fljótt að kveikja að við séum í körfuboltaliðinu.
Ég fór á einn klúbb um daginn. Edrú auðvitað eins og alltaf. Battlaði einhverja gaura þarna og þeir reyndu ekki einu sinni að fighta á móti. Ameríkanar dansa samt mjög einkennilega. Ef þú ert ekki að ,,Grinda" þá geturðu bara alveg eins gleymt því að dansa. Allir eru að grinda. Og það er frekar dirty.
En yo, ein stelpa þarna frá Ecuador sem ég þekki smá er þarna dansandi eins og manneskja, face to face og auðvitað fer ég og dansa við hana.
P.S Ef þú ferð út að dansa hér þá ertu komin heim rétt eftir 1 leytið. Sem er mjög gott miðað við þetta late night íslenska næturlíf. Ég var samt ekki að fýla USA klúbba það mikið og þetta verður í eina skiptið sem ég fer clubbin hér í langan tíma.
Allavega - Kvöldið eftir segi ég henni hvað ég var að fíla dans skillsið hennar á facebook. Og bauð henni auðvitað í heimsókn og bað hana um að kenna mér þessa dansa. Viti menn, hún er bara einhver Salsa snillingur og fer hún beint í að kenna stráknum sporin heima hjá mér. Hún sýnir mér einhver move og ég hermi og svo sýnir hún mér fleiri og ég hermi og svo sýnir hún mér einhverja snúninga og ég næ þessu strax. Eftir smá tíma segir hún (Ath. ég er ógeðslega stoltur af þessu) ,,Ohhh my god bíddu, þetta er ótrúlegt. Ég skil ekki hvernig þú getur verið svona fljótur að ná þessu... þetta er ótrúlegt". Eftir nánast hverja nýja hreyfingu segir hún ,,Ohhh my god"
Svo spyr hún mig eftir þetta: ,,So in your country, are you like a professional dancer or something?".
... Þið þurfið ekki að spyrja hvert svarið var.
Ath. Þrátt fyrir að við séum bæði tönuð, með dans skills og lýtum drullu fallega út þá erum við bara vinir. Og ekkert meira verður það, allavega ekki mín megin. Sorry mamma. Ég lofaði þér að giftast svartri og ég mun halda mér við það plan.
Ég ætla að segja þetta gott í bili en enda þetta á myndashowi sem ein vinkona mín hér tók af skólalóðinni.
Loves, Arni Rag - eða A.R


















Ég er hræddur um að þú sért á leiðinni að verða herra óstöðvandi. Hæfileikar þínir nýtast vel þarna í BNA sé ég og spurning hvort þú sért ekki bara næsti MJ?
SvaraEyðaAnnars segi ég bara fulla ferð á þetta og gangi þér vel að trylla pleisið!
Þinn ástkæri Torfi :*
Gaman að heyra hvað það gengur vel hjá þér þarna úti. Ert greinilega bara orðinn strax eins og innfæddur og átt auðvelt með að eignast nýja vini og blend in.
SvaraEyðaGangi þér bara ógeðslega vel, veit þú verður bestur þarna.
You can do anything you set your mind to!!
Kveðja, Andrea
gleymdi einu, geturu pakkað þessum Xavier inn og gefið mér í afmælisgjöf?
SvaraEyðaTorfi: Takk fyrir kveðjuna.... En ég verð tvöfaldur MJ hérna if you know what I mean.
SvaraEyðaAndrea: Hahaha.... hann verður örrugglega sáttur þegar ég segi honum frá þessu commenti.
Þetta er enginn smá skóli sem að þú ert í! Geggjað að heyra að allt gangi vel hjá þér...þú verður bara betri og betri ;)
SvaraEyðaHaltu áfram að rúla á dansgólfinu!! haha
Kv. Tinna Björk
Mér sýnist þriðjudagar verða uppáhalds dagar þínir í vetur! Annars er ég að fýla þennan mat í boði, væri killer ef þú gætir bara valið um pylsur eða pasta á hverjum degi eða eitthvað....
SvaraEyðaætla að fara að æfa mig að grinda
- peace!
- Pálmar R
haltu áfram að blogga krúttið þitt! ert að lifa drauminn !!! eins gott að þú standir þig....ekki að það sé hætta á neinu öðru!
SvaraEyðaég las bloggið þitt, og ég hló .. oft ! :D þú ert meistari og ég sakna þín þegar ég les þetta ! djöfulsins snilldar staður !!!
SvaraEyðamá alveg koma í heimsókn ? :D
KV.hrefna baby
flottur og gángi þér vel þarna úti
SvaraEyðaþorri í 8.flokk
okee hlakka til að koma í heimsókn til þín og fá að crasha bara hjá Xavier vini mínum :)
SvaraEyðaKV ÞÍN KOLLA
Takk fyrir það Tinna. Bið að heilsa Sindra, Anton og Önnu :)
SvaraEyðaHrefna: Þú mátt klárlega koma í heimsókn. Þú mátt velja hvort þú vilt gista hjá mér eða einhverjum af þessum hel-myndarlegu samherjum mínum sem btw eru allir forríkir... klárlega mér!
Þorri: Takk fyrir það... ég fylgist með ykkur í vetur.
Kolla: You got it. Þú og X for life. Husband and wife ég get pluggað þessu. Loves.
Takk Nafnlaus... nei þú ert maðurinn.
P.S Engir þriðjudagar lengur P Rags.
Kv. Árni
ótrúlega gaman að lesa bloggið þitt:D verður gaman að fylgjast með þér hérna:)
SvaraEyðaKv. Anna María
úff Árni það er ekkert annað, líst vel á þetta hjá þér.. Við stelpurnar tökum bara roadtrip bráðum og tjékkum á þessu, jafnvel einn leik eða svo þegar seasonið hefst!!
SvaraEyðaSíðan ertu ávallt velkominn til Montgomery, þar er sko stuðið!
One luv
Ásta
Takk Anna... erfitt að hugsa um að sjá ekki þessi augu á næstunni maður...
SvaraEyðaÁsta, klárlega roadtrip. Ég ætla að koma líka einn daginn, engin spurning.