föstudagur, 7. ágúst 2009

Lakehouse og Myndband af aðstöðu í UAH

(Ath. mjög mikilvægt: í alvörunni er ég miklu massaðri en á þessari mynd)

Eftir aðeins 3 nætur í Huntsville fóru liðsfélagar mínir með í Lakehouse. Það er eitt sem ég fýla hérna og það er að allir liðsfélagar mínir (sem ég hef hitt) eru fáranlega nice gaurar. Allir eru að hugsa um að taka vel á móti mér og passa að mér leiðist ekki svona áður en skólinn byrjar. Ég hitti þarna 3 Liðsfélaga mína, Tyler Hanback, Srdjan Boskovic, Josh Yost ásamt nokkrum vinum þeirra ásamt Tyler Dunaway. ,,Lakehouse" er hús sem er byggt á vatni og er með all around sólpalli á vatninu. Einn liðsfélagi minn sem heitir Tyler Hanback á þetta hús og er það ekki allt. Hann á einni ógeðslega nettan spítt/chill bát. Tyler Dunaway á svo Jet-Ski sem hann kom með og svo áttu strákarnir Wake Boards sem er einskonar Snjóbretti sem þú take-ar bátinn á.

Án gríns þá var þetta örrugglega mest nice dagur lífs míns. Við chilluðum þarna á vatninu í svona 35 gráðu hita (Wild Guess) í bátnum, jet-skis og á wake boards og fórum líka upp svona kletta og hoppuðum niður af mikilli hæð í vatnið. Þetta vatn er hrikalega stórt og hægt að gera allskonar hluti þarna, sem dæmi þá er vatnið örrugglega svona 15x stærra en Reykjavík.

(Josh Yost, Srdjan aftari miðja, Tyler Hanback til hægri og Kael Coleman fyrrverandi UAH leikmaður fremst)

Það besta við þennan bát er að hann var með rosalegum græjum og voru gaurarnir blastandi wild rappi allan tímann og þá sérstaklega fílaði ég lagið "Im on a boat" en það er örrugglega eitt fyndnasta hardcore rapp lag sem ég hef heyrt.

Ég var ekki sáttur að hafa ekki verið með cameruna mína, en það besta við þetta er að þessir liðsfélagar mínir actually eiga allt þetta stuff og þarna hanga þeir alltaf þegar þeir eru ekki að æfa. Strákarnir sögðu við mig eftirá að þeir væru til í að fara þangað hvenær sem ég vildi, all year long. Þeir elskuðu að vera þarna og ef ég vildi koma þá væru þeir alltaf game. Þeir fara þarna sjálfir 5-6x í mánuði þannig að það er eiginlega bara to good to be true.

Samantekt: Að chilla þarna er RUGL

Ég skal viðurkenna það. Höndin mín er ennþá brákuð. Trainerarnir hérna tala um að þetta sé beinmar og ég þurfi að hvíla hana alveg í nokkra daga, kæla hana mikið og svo sjá til. Ég er samt búin að æfa eins og vél, lyftingar, plyometrics, core, spretti, hlaup og hluti sem ég get gert en ég hef ekki spilað við strákana ennþá.

(Tyler Hanback - Þessi gaur er virkilega góður)

Aðeins 4 strákar í liðinu eru komnir til Huntsville. Hinir fóru í 2 vikna sumarfrí fyrir nokkrum dögum heim til fjölskyldna sinna. Þeir koma um 16. Ágúst. Það var pick-up bolti um daginn í gymminu. 4 Liðsfélagar mínir voru að spila með svertingjum frá skólum í kring, flestir þeirra eru að spila college í Division 1 skólum. Ég horfði á. Ég varð fyrir nettu shocki hvað þessir gaurar eru góðir, og þá er ég að tala um gaurana í mínu liði. Ég trúði því virkilega að ég myndi koma hérna og vera lang bestur í liðinu mínu. Þessir gaurar eru ekkert djók. Og þá er ég að tala um Josh Yost, Tyler Hanback og Srdjan Boskovic sem eru allt orðnir góðir félagar mínir. Þeir eru stórir og langir, geta dripplað vel og hitta ennþá betur. Íþróttalega séð þá eru þeir troðandi í bullinu.

Ég var virkilega glaður eftir þessa æfingu. Ég hugsaði með mér ,,Yes... þetta á eftir að verða gaman". Ég var virkilega að vona að strákarnir hér væru góðir, en ég þorði ekki að vona að þeir væru svona góðir. Bara samkeppnin sem ég á eftir að fá á æfingum hérna á eftir að vera frábær fyrir mig og gera mig að betri leikmanni. Ég held að ég geti tekið þessa gaura, það verður krefjandi og skemmtilegt að æfa hér.

(Þessa dagana bý ég með þessum töffurum)

Ég flyt í íbúðina mína 9. Ágúst (Dorms). En núna bý ég í nánast alveg eins íbúð á meðan það er verið að mála mína. Ég bý með 2 töffurum sem eru samt sem áður drullunettir gaurar. Til vinstri er Alex og til hægri er Nathan.

Aðstaðan hérna er fáranleg. Allt rosalega flott og fallegt, sólin skín allan daginn og ég er orðnir vel tanaður bara á því að labba á milli húsa. Ég tók myndband af aðstöðunni ásamt fleiru og ætla ég að posta því hér neðst. Ég tók bara myndbönd af nokkrum byggingum, kannski ég taki myndbönd af fleiri seinna en ég held það séu um 40 byggingar á skólalóðinni og skólalóðin sjálf er mjög stór. Sem dæmi þá myndi ég giska á að hún sé 2x Mosfellsbær (Wild Guess).

(Serge eins og ég kalla hann)

Þessi maður er drullunettur. Hann er búinn að sjá um mig hérna og hjálpa mér með allt sem ég þarf. Ég og hann erum einu gaurarnir í liðinu sem eru Internationals en hann er frá Serbíu. Hann hefur gengið í gegnum allt áður og hefur farið með mig í gegnum allt pappírsruglið, tekið mig í allar búðir sem ég þarf, Wall Mart farið með mig út að éta og við bara verið chillin. P.S hann skoðaði facebookið mitt, taggaðar myndir og eftir það hefur hann ekki talað um mikið annað en hvað Íslenskar stelpur séu sætar. Þannig ef þú ert tögguð í myndum hjá mér, take it is a compliment. En þessi gaur er bara maðurinn.

Ég ætla ekki að skrifa meira í bili þó ég gæti skrifað endalaust meira. En ég læt það bíða, leave something out there. Ég var að kaupa cameru þannig að myndirnar fara að koma í massavís.

Hér er myndbandið af aðstöðunni. Það eru fullt af hlutum sem ég á eftir að taka upp betur eins og heimavistirnar, íþróttasvæðin, fyrir utan húsin, búningsklefana og fleira en þessu var hent lauslega saman til að gefa ykkur örlitla mynd af þessu, talvan mín var of hæg til að geta unnið í þessu forriti svo ég gat ekkert verið að klippa þetta mikið til þannig þið afsakið gæðin í þessu. P.S Í myndbandinu eru bara örfá svæði en á skólalóðinni eru um 40 svæði af byggingum.



Loves,
Árni Ragg

13 ummæli:

  1. Árni... Ekkert nema NÆS!!! Hafðu það gott og ég bið að heilsa öllum heitu körfuboltagæjunum! Og já þú ert klárlega muuuun massaðri in real life heldur en á þessari mynd þarna, þó þú sért mjög massaður á henni :D

    SvaraEyða
  2. Semsagt bara fáranlega leiðinlegt þarna og þig langarað koma heim. haha i'm on a boat er sketch úr Saturday night live og þeir kalla sig lonely island...þeir eru of góðir

    SvaraEyða
  3. Frábært að heyra hvað þú ert að skemmta þér vel þarna. Vona að hendin lagist fljótlega svo þú getir farið að spila.
    Gaman að fá að fylgjast með þér. Það er alltaf jafn skemmtilegt að lesa bloggin þín. Þú ert góður penni! :)

    Hafðu það gott þarna úti
    kv. Tinna Rut

    SvaraEyða
  4. Damn boy hljómar allt saman fáranlega vel, live it up! Þú gleymdir samt einum mikilvægum hlut. Ég veit vel að gellurnar hérna heima eru fine, en hvernig eru þær þarna úti?!

    SvaraEyða
  5. frábært að heyra hvað það er gaman hjá þér þarna úti :) smáá öfund í gangi ! aðstaðan þarna er bara klikkuð...hlakka til að heyra meira í þér
    kveðja uppáhalds systir þín

    SvaraEyða
  6. Árni þú ert maðurinn, þetta er svaka aðstaða!!! nýttu hana vel og sýndu þessu köllum hvernig á að gera þetta...

    kv. Bjarni

    SvaraEyða
  7. Bara skemmtilegt Árni!! Aðstaðan til fyrirmyndar, ÞÚ ert frábær penni.
    Kv,
    Helena

    SvaraEyða
  8. Þakka ykkur fyrir þessu nettu skilaboð allir!

    En til að svara spurningu þinni Erik þá er ekki mikið af fólki mætt á campus en miðað við það sem ég hef séð á þetta ekki séns í Ísland.

    Kv. Árni

    SvaraEyða
  9. Er einn af þessum gaurum ekki grunsamlega líkur Brynjari Kristó.. Get back to me on that one brah

    SvaraEyða
  10. jess! frábær fyrsta vika!!!

    haha, en ég las þarna með þegar þú fékkst far hjá þessum manni og allir hafi verið að missa sig yfir því, og að svona geti maður nú ekki gert í USA... ég lenti í MJÖG svipuðu atviki fyrsta árið mitt, og stelpurnar voru sko alls ekki sáttar með mig! hehe, mér fannst þetta SVO saklaust.

    en við látum verða að þessu roadtrip þegar ég verð komin út,,

    kv, Helena

    SvaraEyða
  11. jess! frábær fyrsta vika!!!

    haha, en ég las þarna með þegar þú fékkst far hjá þessum manni og allir hafi verið að missa sig yfir því, og að svona geti maður nú ekki gert í USA... ég lenti í MJÖG svipuðu atviki fyrsta árið mitt, og stelpurnar voru sko alls ekki sáttar með mig! hehe, mér fannst þetta SVO saklaust.

    en við látum verða að þessu roadtrip þegar ég verð komin út,,

    kv, Helena

    SvaraEyða
  12. Haha.. já þau þekkja ekki bara icelandic people skillz. En já kláááárlega látum við verða að þessu road-trippi! :)

    Your boy,
    Árni Ragg

    SvaraEyða
  13. Einn af þessum gaurum er Brynjar Kristó og heitir meiraðsegja Brynjar Kristó... whatup?

    Árni

    SvaraEyða