Ég verð að byrja á því að segja að ég er kominn með þá reglu núna að vera alltaf með myndavélina á mér hvert sem ég fer. Ég hef misst af 2 mest töff myndrænu atburðunum því að þeir gerðust báðir instant. Strákarnir í liðinu eru soldið í instant ákvörðunum ,,Hey förum þangað núna" og þá erum við kannski lengst frá minni myndavél og ég get því ekki tekið það upp. En já ég missti af Lakehouse-inu og svo þegar við fórum í annað vatn þar sem var slatti af íþróttafólki UAH að chilla í vatinu og hoppa niður af klettum í sólinni. Covera þetta næst.
Höndin á mér lagaðist og ég spilaði tvo á tvo við strákana í liðinu. Ég var bara drullugóður og mitt lið vann fleiri leiki. Þessir strákar eiga eftir að eiga erfiða tíma framundan uppá að skora á móti mér ég fann það strax. Samt sem áður rosaleg samkeppni og mjög jafnir leikir sem var bara alveg sjúklega gaman.
Margt búið að gerast frá því síðast. Í gærkvöldi (Laugardagur) var svona lítið partý, meira svona get to gather þar sem strákarnir í liðinu + kærustur þeirra og vinafólk komu. Orðrómur um dansinn minn hefur spyrst hér út og voru allir að grátbiðja mig um að battla. Ég sagðist auðvitað ekki battla fyrir minna en 100 manns en lofaði að gefa þeim þetta þegar við færum í stærri partý. Annars var þetta bara chillað. Ég var að spjalla við einhvað að liði þarna og segja þeim frá Íslandi. (Newsflash, converse skór eru ekki taldir töff í USA) -
(Newsflash 2, ég ætla samt að rocka þeim hérna, því ég er að lovah þá) -
(Newsflash 3, ef Lebron James gat gert hlaupaskó töff hér þá getur Árni Ragg gert converse skó töff... whatup??!?)
Eftir partý-ið fórum við út að borða á ihop sem er pönnukökuhús. Frekar töff, en ég fékk mér auðvitað hollan kjúkling fyrst en smakkaði pönnukökurnar sem voru nettar. Kærustur liðsfélaga minna eru eins og allir aðrir hérna, drullunice.
Fólk hér í Huntsville er frekar trúað. Flestir fara í kirkju alla Sunnudaga. Liðsfélagi minn sagði að það væri svona 30-50% rate á að krakkar hér taki sex after marriage til fyrirmyndar. Veit um marga í liðinu mínu sem taka það til fyrirmyndar.
Ég er búinn að hanga mikið með Srge og Josh í íbúðinni þeirra. Þeir eiga geggjaða íbúð. Allir með sérherbergi, sér klósett, sér sturtu, nett sjónvarp, tölvur og sundlaug fyrir utan íbúðina. Ég get búið með þeim í þessari íbúð á næsta ári ef ég vill.
Það sem ég fýla við að vera hérna er að allir strákarnir í liðinu eru á svipuðu aldurskeiði, allir að gera það sama og hugsa svipað. Leikmennirnir eru metnaðarfullir og æfa á hverjum degi, bæði lyfta og æfa körfubolta og sjá um allt sem þeir þurfa að gera utan þess.
(Serge og Ég að borða á Outback. Fahitas með kjúkling, beikon og bræddum osti, whatup?)Ég ætla að segja ykkur meira frá Srge, eða Srdjan Boskovic eins og hann heitir fullu nafni. Af 15 manna hóp er hann eini annar leikmaður UAH sem kemur ekki frá USA. Þessi maður er alger meistari og höngum við mikið saman. Mjög klár strákur sem fékk meðal annars 4.0 í GPA einkunn sem er 100% score sem er mjög merkilegt að ná samhliða því að vera í svona körfuboltaprógrammi.
Allavega. Hann kemur frá Serbíu sem er mjög sterk körfuboltaþjóð. 15-16 ára gamall var hann valinn í landslið Serbíu sem keppti á heimsmeistaramóti U-16 landsliða. Á mótinu voru allar sterkustu þjóðir heims; USA, Spánn, Argentína, Grikkland, Króatía, Ítalía, Frakkland og fleiri en aðeins þær sterkustu komast á þetta mót.
Allavega, Srge var bráðþroska og var aðal maðurinn í Serbneska landsliðinu. Serbneska landsliðið endar á því að vinna mótið og ekki bara vinna það. Heldur rústa því. Srge skorar 30 stig að meðaltali í leik og er valinn MVP mótsins. Þannig að með öðrum orðum þá má segja að þegar við félagarnir vorum 15-16 ára að leika okkur úti í körfu, þá var þessi maður Srdjan Boskovic besti leikmaður heimsins í okkar aldursflokki. (Hann er fæddur 1987 eins og ég). Hann sagði samt að hann hafi ekki látið hype-ið ná neitt til sín og honum þótti þetta ekkert sérstaklega merkilegt á sínum tíma og hann hafi verið sallarólegur yfir þessu.
Eftir þetta var honum boðið allskyns atvinnumannasamningar frá stærstu liðum Evrópu en hann ákvað að spila fyrir local lið í landi sínu og svo seinna ákvað hann að fara í college í staðinn fyrir atvinnumennsku en honum var boðið í fullt af góðum fyrsta deildar skólum hér í USA en hann ákvað að koma hingað því honum leist best á fólkið hér og aðstöðuna. Hann sagði ástæðuna vera sú að ef hann færi í hina skólana þá veit hann að ef einhvað myndi gerast, eins og hann myndi slíta krossband(Sem gerðist fyrir hann síðasta vetur) þá myndu hinir skólarnir bara losa sig við hann og bjóða öðrum skólastyrkinn en með þjálfarana hér þá vissi hann að þetta væri gott fólk og þeir myndu hjálpa honum í gegnum þetta og standa með honum. Mjög klár strákur og þetta borgaði sig svo sannarlega fyrir hann.
Í vikunni fer ég í gegnum allskonar kynningar hjá skólanum og heng með freshmans þar sem við eigum að gera eitthvað skemmtilegt. Ég læt þetta gott heita í bili en læt hér fylgja með nokkur myndbönd. 2 myndbönd af aðstöðunni hérna og 1 bara svona fyrir þá sem vilja sjá svona part af everyday normal life hjá mér.
P.S - Mjög margir hafa verið að biðja mig um að skrifa bloggin mín hér á ensku. Bæði enskir vinir heima og liðsfélagar mínir hér í USA sem langar virkilega til að lesa þetta. Maður veit ekki hvort það sé málið, kannski skilja hvorteðer allir þeir Íslensku sem lesa þetta Enskuna. Hvað finnst þér?
Myndband #1: Aðstaða UAH Housing. Heimavistarinnar þar sem ég bý. Boom Boom Boom.
Myndband #2: Heimili eldri leikmanna UAH. Eftir fyrsta árið máttu flytja í íbúð. Hér búa nokkrir liðsfélagar mínir í vetur. Ég get flutt þangað eftir þetta ár. Ég tók þetta upp á mínum öðrum degi í Huntsville, frekar wild stuff.
Myndband #3: Ég og Srge á leiðinni út að borða. Srge elskar Serbnesku tónlistina og fæ ég að finna fyrir því mjög oft. Hún er samt nett en inná milli hefur hann mjög góðan tónlistarsmekk og hlustar á USA rapp. Í myndbandinu eru yndisfagrar upptökur af umferðarlífi Alabama.


Hahah fýla það að þú sért kominn með fish sticks... what are you Arnie, a gay fish?
SvaraEyða- brotha
Er ég í ruglinu eða vantar hljóð inn á seinni tvö myndböndin??
SvaraEyðaÁnægður með fyrsta myndbandið samt, gerði svipað hérna í Ástralíu en ákvað að halda því bara fyrir mig hehe.
BÚMM!
Eg er gay fish officially! haha
SvaraEyðaOg Oli P thu ert nattla rugladur... tarft ekki einu sinni ad spyrja mig af thvi.
P.S vill sja thetta myndband thitt online
Kv. Arni Ragg
hvað maður gæfi fyrir að vera 20 ára aftur og taka þennan pakka. geðveikt öfundsjúkur.
SvaraEyðakv. sævar
Hahaha Árni svona seriously þá held að þú sért einn fyndnasti gaur sem ég þekki. It's Amazing! Og söngurinn hjá þér þarna í lokin.. aaaðeins of góður! Reyndu nú að ná smá tani samt... bjóst alveg við miklu meira tani hjá þér drengur.. gengur ekki!
SvaraEyðaKv. Gréta.
Power!
SvaraEyðaHehe sævar... það er aldrei of seint að fake-a ID.
SvaraEyðaTakk fyrir það Gréta... og já ég ætla að reyna að uppa game-ið mitt og byrja að nenna að hanga aðeins meira útí sólinni ! :) bara fyrir þig..
Nafnlaus... u said it, mad power
Þú ert næsta Vala Matt!
SvaraEyðaI LOVE YOU
SvaraEyðakv þín kolla
Djöfull er þetta nice hjá þér. Gæti ekki vitað betur en að þú ert að fíla þig í botn þarna ;)
SvaraEyðaKv.
Árni jr.
Mega nice hjá þér og gott að allt gangi svona vel!
SvaraEyðaÞú alltaf góður að koma á milli í myndböndunum, að sýna hvað þú ert fáránlega massaður og tanaður.
ps.lúmskur að spenna býssurnar á veitingastaðnum!
Haha Ásrún þetta er ekkert lúmskt... allt planað ;) en takk!
SvaraEyðaEgill takk... besta hrós sem ég gæti óskað mér. Vala Matt er náttla gellan og ég lærði allt hjá henni.
Kolls og Árni jr. MAD LOVES