fimmtudagur, 1. apríl 2010

Á heimleið

Ég sá þetta ekki alveg koma. En vegna góðs gengis UAH í vetur þá bauðst þeim að fá high-profile recruit frá Texas inní liðið. Háskólaboltinn í USA er greinilega ekki jafn flottur og ég hélt, því til þess að geta boðið þessum gaur skólastyrk þá þurfti UAH að losa um minn.


Ég var kallaður á fund síðastliðin þriðjudag þar sem mér var tjáð að ég hefði staðið mig með prýði síðan ég kom hingað en vegna breyttra aðstæðna og kreppunar þá væru þeir ekki með lausan skólastyrk fyrir þennan ákveðna leikmann og þyrftu þess vegna að tosa í nokkra spotta.

Ég er bæði sár og svekktur. Mér líður í rauninni eins og ég hafi verið svikin, þar sem ég dúsaði hérna í heilt ár án þess að spila, gerði alla í kringum mig betri en er svo látin fara nánast alveg uppúr þurru. Ég kannaði NCAA reglurnar fyrir þessu og er víst lítið sem ég get gert.

Fyrst ég er ekki að fara að vera hérna næstu 3-4 árin þá sé ég engan tilgang fyrir því að klára skólaárið, sérstaklega í ljósi þess að ég er að taka áfanga sem ég fæ ekki einu sinni metna á Íslandi.

(Á leiðinni aftur heim, verð flottur í Fjölnisbúningnum næsta vetur)

En það þýðir ekki að væla það sem búið er, ný markmið taka við og ég er strax búin að heyra í nokkrum liðum heima á Íslandi. Ég átti gott spjall við Bárð Eyþórsson í gær og sé fátt sem kemur í veg fyrir að ég spili með mínu heimaliði Fjölni næsta vetur. Þar sem ég er í yfirburða besta formi lífs míns einmitt núna, þá mun ég líklega detta í eitt ákveðið lið í úrslitakeppni Iceland Express þetta tímabilið... Ég verð að viðurkenna að ég er hrikalega spenntur fyrir því. Show me the money er það eina sem ég hef að segja við liðin þarna úti.

Ég lendi á Keflavíkurflugvelli næstkomandi Laugardagskvöld en þeir sem þekkja mig vita að ég verð tilbúin til að spila strax á Sunnudeginum.

Þó þetta sé að vissu leyti mikil vonbrigði þá hlakka ég þvílíkt til að sjá alla heima!

Árni Ragnarsson

8 ummæli:

  1. V'a leidinlegt ad heyra vinur! :/

    SvaraEyða
  2. Lífið er hart og kalt, en ég er feginn að vera í DK því Mothafuckas thurfa að watch out back in Iceland.

    Kv. Gunni Skúla

    SvaraEyða
  3. Fokk. Maður, 1.apríl much?

    /rg

    SvaraEyða
  4. Hlakka til að sjá þig félagi, og spila hérna á Íslandi.

    Kv.
    Árni Þór :)

    SvaraEyða
  5. Shitt ég trúði þessum næstum því..

    Björn Þór

    SvaraEyða
  6. svona eru tessir helvitis kanar tad er ekkert respect i tessu landi hugsa bara um sjalfa sig. Mer finnst leidinlegt ad heyra tetta vinur hefdi verid gaman ad heimsaekja tig tarna i Huntsville en vid sjaumst vonandi a islandi i sumar.

    Kv Gunnar Hilmar

    SvaraEyða
  7. hahaha ég hleyp sko ekki 1.apríl af tveimur Árnum;)
    kv.Anna María

    SvaraEyða
  8. Hahahahha..... riiiight.... ;)
    Knús á þig Árni minn :)

    Kv. Tara

    SvaraEyða