föstudagur, 14. ágúst 2009

Körfuboltinn á 100% ról + Mad video at bottom

(Ég og Josh eftir æfingu... þessi gaur er beast. Æfir eins og Maniac(Árni Ragg))


Það eru 1000 hlutir sem ég gæti skrifað um. Ég ætla samt sem áður ekki að fara þá leið.

Byrjum á aðal hlutnum. Ég hitti einhvern rosalegan handasérfræðing hér sem gat sagt mér nákvæmlega hvað ég átti að gera. Þannig var það að UAH liðið reddaði mér tíma hjá einhverjum svakalegum gaur bara klukkutíma eftir að ég sagði þeim að ég vildi láta mynda þetta. Fólk var búið að bíða í röðum í sjúkrahúsinu en ég labbaði beint inn til læknisins og beint í röntgen myndatöku og svo fékk ég niðurstöður og ráðlagningar strax frá lækninum. Mér leið smá óþægilega en greinilegt að skólinn er vel tengdur.

Allavega. Ég var ekki brotinn, var bara með beinmar. Þannig að basically það sem læknirinn sagði mér var að ég myndi finna sársauka næstu 2 vikur þegar ég spila en hann sagði að ég mætti samt byrja að skjóta aðeins og fikra mig áfram. Sama kvöld var ég auðvitað farinn að spila við strákana.

(Við strákarnir í einum af þessum rugl rides sem þeir eiga)

Þannig að núna er ég kominn á fullt ról. Átti frábæra æfingu í kvöld þegar ég spilaði við strákana tveir á móti tveimur. Rétt áður en ég kom til USA var ég búinn að skjóta endalaust með skotvélinni í Dalhúsum og ég finn ennþá fyrir því. Það var allt ofan í. Auk þess er ég klárlega sterkasti varnarmaðurinn af þeim sem ég hef spilað á móti hér. Mér líður bara vel í höndinni núna eftir 2 alvöru æfingar. Ég er kominn á 100% spilandi ról.

Það er búið að vera fullt af kynningum í skólanum. Bæði fyrir international students og freshman students. Ég er líklega búinn að kynnast um 60-70 manns hérna already. Mér hefur þótt virkilega gaman að tala við international nemundurna hér og læra um þeirra sögu og menningu. Ég er búinn að spjalla mikið við bæði stelpur og stráka frá löndum eins og: Venezuela, Perú, Equador, Indlandi, Japan, Kína, Malasíu, Montenegro, Bahamas, Bermuda og fleiri.


Auk þess hef er ég kominn í nett slagtog við grúppu af Kanadískum Hokkí gaurum. (Hokkí liðið hér er virkilega gott og fara reglulega gaurar héðan í NHL deildina). Þessir Hokkí gaurar eru að læra það sama og ég (Business Management) og eru þeir drullu fínir gaurar. Soldið miklir töffarar og harðir gaurar en það er náttúrulega bara það sama og ég (H) ... kannski -(Mínus) Dans og Söngur.

Auk þess ætla ég að tala um svarta fólkið. Svörtu vinir mínir hér eiga eftir að verða uppáhalds vinir mínir. Ég er strax búinn að finna Step fólkið hérna. En það er fólk hér sem Steppar alveg eins og fólkið í myndinni stórfenglegu ,,Stomp the yard". Þau sýndu mér fullt af Step moves og voru ólm að reyna að fá mig til að joina liðið þeirra. Sjáum til með það. Ég er natural... og þau munu komast að því.

(Blakæfing... já ég veit. Ég þarf að fara að taka fleiri myndir)

Að lokum kemur ein lítil saga úr Business Management ,,kynningu". Allir freshmans í Business Management deildinni voru búin að vera á lítilli kynningu um deildina í svona stórri skólastofu. Kannski um 50 manns þarna inni. Ég kem aðeins of seint því ég þurfti að vera á fundi með einhverri gellu um önnur skólamál. Allavega ég labba þarna inn og það er eitthvað fólk að kynna deildina. Þá segir hann ,,Ok welcome... so since you came in right now I want you to tell me you your name, where you are from, and a fact about yourself". - Þarna var ljóst að þessi gaur ætlaði eitthvað að face-a mig fyrir að vera seinn áður en ég gat beðist afsökunar á því. Allavega eins og þið vitið var hann ekki að tala við rétta manninn uppá að face-a einhvern. Ég segi þá óeðlilega hátt,,Ok Thank you man!" og labba fyrir framan bekkinn.

Þá segi ég ,,Ok my name is Arni Ragnarsson. I love being in Huntsville, I love the weather. Im from Iceland. And yeah a fact about myself... I can both sing and dance... and im really good at it".

Þarna var gamli ekki hættur. ,,Yeah... well ok why dont you give us a little example of your singing?"

Árni Ragg: ,,Are you kidding me... Im used to sing in front of huge crowds in Iceland... I never sing unless there are at least one thousand people in there".
Gamli: ,,Yeah... well we got at least 50 in here".
Árni Ragg: ,,Well... bring in another 950 and its gona be a show".
Gamli: ,,Ok... there is going to be a Kareoki here tonight... so will u do it then?"
Árni Ragg: ,,Ohhh yeahh, I mean if the people are coming... just get ready".

P.S Allir í tímanum voru í hláturskasti allan tímann. Og allar stelpurnar komu til mín eftirá ,,Ohhh are you really a singer??". Ég og Gamli refurinn urðum svo topp félagar eftir þetta og var hann bara aðeins að messast í mér. Gott grín þetta og var þetta auðvitað allt á léttu nótunum.

Er kominn með mun fleiri video af stuffi hérna. Vá það er sumt stuff hérna í aðstöðunni sem ég á eftir að sýna ykkur betur frá sem ég er að elska. Ætla að bíða aðeins með það en enda þetta blogg á classical video-i. En hérna getiði séð BESTA duet Íslandsögunnar þegar atvinnusöngkonan Anna María fór upp um level þegar hún fékk þann heiður að syngja með the god given talented singer Árna Ragg. Enjoy.





9 ummæli:

  1. ég dýrka hvernig þú tæklar hlutina =) svona á að gera þetta!

    hlakka til að lesa meira

    kv. Karen..
    P.S. Stína stuð biður að heilsa.

    SvaraEyða
  2. Rosalega gaman að sjá hvað þú ert duglegur að update-a okkur heima! keep up the good work Árni !

    SvaraEyða
  3. Þú ert bara frábær Árni geggjað að fylgjast með blogginu þínu!! Ætli þú endir ekki á að skrifa bók einhvern daginn :-) Haltu áfram að njóta lífsins og vera flottur!!!

    SvaraEyða
  4. Skemmtilegt að lesa þetta blogg. Þú virðist hafa það aðeins of gott þarna úti. Annars ætla ég að spá því að þú verðir fyrsti íslendingurinn til að vinna titil í NBA deildinni.. og ekki með ómerkilegara liði en Chicago Bulls.. í treyju nr. 32.. eða 28.. og spila með Dwayne Wade eða Lebron James (því annar þeirra fer pottþétt til Bulls næsta sumar).

    Gefum þessu svona 2 ár.. þetta mun pottþétt gerast :)

    SvaraEyða
  5. Karen: Bið að heilsa Stínunni sömuleiðis :)

    Thx Andrea og Helena... og já ég mun klárlega skrifa nokkrar bækur...

    Valur verum bara raunsæir og gefum þessu 3 mánuði... NBA liðin lýta ekkert framhjá Íslensku töfrunum

    Kv. Árni

    SvaraEyða
  6. Held það sé kominn tími á nýtt blog takk ;)

    Kv, Reynir

    SvaraEyða
  7. Shit hvað ég er ánægður með atvikið í kennslustofunni. Fáránlega svalur.

    SvaraEyða
  8. Hehe Reynir ég er að fíla hvað þú ert diggur lesandi hérna.

    Thx Óli... svalur gaur = svöl moment.

    ... Hey whats going on, you know my name
    I......

    SvaraEyða
  9. Árni... nei þú ert bara alveg meðetta!

    Gréta

    SvaraEyða