Undirbúið ykkur, þann 13. maí næstkomandi mun ég mæta sjúklega tanaður á Keflavíkurflugvöll.
Byrjum á því mikilvægasta í fréttum.
#1 Tan

Ég er orðin frekar tanaður. Ég er búin að taka svona 1 dag á viku á sundlaugarbakkanum, 2 ef ég er í stuði. Ég myndi eflaust sitja þarna oftar ef ekki væri fyrir margar æfingar (þar sem það er ekki sniðugt að sitja mikið í sólinni fyrir æfingar) og auðvitað skólavinnu. Ef ekki væri fyrir það þá væri ég líklega kominn vel inná Mexíkana levelið í tani, en það verður að bíða betri tíma. Ég tók smá myndband um daginn sem gefur ágætis mynd af því hvernig fílingur er að chilla þarna.
Það sem er merkilegt við að vera hérna er að það er svo stabílt gott veður hérna. Það er nánast heiðskýrt úti og 30+ stiga hiti hvern einasta dag.
Þrátt fyrir þetta frábæra veðurfar og ljúfa líf þá er ég samt sem áður mjög spenntur fyrir að koma heim til Íslands í sumar. Ég mun aðeins vera í rúma 2 mánuði heima þetta sumarið þar sem ég mun fara út snemma aftur til þess að æfa við frábærar aðstæður og flott tækifæri sem mér bauðst hérna í gegnum liðsfélaga minn, en ég segi ykkur kannski betur frá því seinna.
#2 Körfubolti
(Það er fáranlega gaman að spila körfubolta)
Mánudagur og Miðvikudagur = Individuals (Einstaklingsæfing)
Þarna æfum við í 4 manna hópum með 3 þjálfurum. Þetta eru alveg hrikalega erfiðar æfingar en að sama skapi alger snilld og maður er drillaður alveg í pönnu.
Sunnudagur, Þriðjudagur og Fimmtudagur = Physical.
Það var ráðin alger snilldar styrktarþjálfari inní prógrammið sem heitir Brian Utley. Ég er þvílíkt hrifin af því sem hann er að gera með okkur. Hann er basketball specific (sérhæfður körfubolta) styrktjarþjálfari sem hefur unnið við þetta í gegnum fjöldan allan af árum. Þetta er einstaklingsmiðað prógram þar sem hver og einn þarf að vinna í mismunandi hlutum. Þrátt fyrir það förum við í gegnum mikið af því sama í grunnhreyfingum og öðru, en það verður mjög spennandi að sjá hvað gerist með þetta.
(Þessi rós er alveg fáranlega falleg)
Þess má geta að við vorum teknir í próf fyrsta kvöldið sem hann mætti hingað þar sem við vorum látnir framkvæma allskonar hreyfingar sem mæla: Styrk, jafnvægi og liðleika. Þetta voru skrýtnar æfingar sem við áttum að gera, og féllu liðsfélagarnir hvað eftir annað í prófunum. Það voru aðeins 2 í liðinu sem fóru perfect í gegnum þetta og var ég auðvitað annar þeirra. Ég mun samt ekki fagna þangað til ég mun mælast með mesta sprengikraftinn.

Þess má kannski líka geta að ég er orðin 94 kg en í síðasta leik sem ég spilaði með FSu á Íslandi þá var ég rúm 85kg. Annars reyni ég yfirleitt að miða mig frekar við snerpu - sprengikraft og styrk frekar en einhverja þyngd. Núna hugsa eflaust margir að ég sé orðin eitthvað feitur enda í landi feita mannsins en svo er nú ekki. Hinsvegar vil ég ekki verða neitt þyngri eða massaðri enda legg ég áherslu á annað. Þannig ég reikna núna með að droppa eins og 2-3 kílóum fyrir næsta tímabil.

Pick-up og aukaæfingar
- Við spilum liðið saman nokkrum sinnum í viku pick-up.
- Auk þess erum búnir að vera að fara félagarnir sjálfir að æfa á hverjum degi þar sem ég fæ yfirleitt James Smith eða Xavier Baldwin til að fara með mér. Spilaði reyndar 1 on 1 við James Smith fyrr í mánuðnum sem endaði með því að ég lenti illa á löpp James og sneri mig. Þurfti að sitja út í 2 vikur en það er allt gott núna og maður komin á fullt aftur.
#3 Skóli
Maður þarf alltaf að vera duglegur í skólanum hérna í UAH. Veit ekki hvort ég hef tekið það fram í þessu bloggi en skólinn er hæst rankaði public skólinn í Alabama, og er talin mjög erfiður hérna á USA mælikvarða. Hann var á top50 lista Princeton yfir bestu skóla USA. Ætla samt ekkert að vera að hype-a það eitthvað upp hvað hann er erfiður, efast um að t.d HÍ sé eitthvað auðveldari. Meðal kaninn getur auðvitað verið soldið duglegur að væla yfir hlutunum. En samt sem áður þarf alltaf að sinna skólanum hérna. Maður labbar ekkert í gegnum UAH án þess að þurfa að mæta í tíma, fylgjast með (ekki bara sofna í krullunum sínum eins og maður var þekktur fyrir hérna í gamla daga) og svo læra heima.
Ég er búin að þurfa að eyða miklum tíma í lærdóm í vetur sem hefur skilad ser a margan hatt.
Það var lokahóf íþróttamanna í skólanum um daginn þar sem allir íþróttamenn skólans komu saman í kvöldmat þar sem var gefið allskonar verðlaun. Þar á meðal fékk ég viðurkenningu sem "Silver scholar athlete" sem er gefið út fyrir nemendur með góðar einkunnir.
Fyrir áhugasama þá var að koma út loka highlight myndband af vetrinum hérna. Getið skoðað það hérna. Getið einnig smellt á það til að horfa á í nýjum glugga ef þetta kemur einhvað funky út í browsernum ykkar.
Ætla að enda á nokkrum basic staðreyndum:
- Lagið Snabby í krókudílalandi með Magga Mix er alger snilld.
- Lagið á sama stað með Friðrik Dór og Erp er fáranlega gott.
- Spartacus eru bestu þættir sem hafa verið gerðir frá upphafi heimsins.
- Ég er fallegasti körfuboltamaður Íslands.
Kveð í bili,
Árni Ragg
Ég get ekkitrúað öðru en að mamma ykkar Pálmars séu fáranlega stoltir foreldar... ace-ið allt nám og íþróttir... en glæsilegt eg mun biða spennt uppa kef flugvelli að taka a moti þer.. haha..
SvaraEyðaHehe það er eins gott að Mamma skammist sín ekki lengur fyrir að labba með okkur bræðrunum í kringlunni!
SvaraEyðaHeyrðu mér líst fáranlega vel á það... treysti á að þú verðir að vinna!
17 dagar í þig love =) Ég elska allt við þetta blogg, meira að segja fallegu rauðu rósina, sick falleg ! Þetta video er mjög töff, smá misheppnað hjá banana stráknum (veit ekki hvað hann heitir) þegar hann ætlar að kyssa stelpuna en hún beilar ;) hehe, fagmaður :) Skemmtilegt drama í videoin, sem er auðvitað must í USA-mynböndum ;)
SvaraEyðaEn er þetta bara 94 kg af vöðvum... verður að kenna mér þessar aðferðir, buffa mig upp ;)
Þetta verður ekki lengri nema að ég fíla tanið, fíla hárið, fíla skyrtuna, fíla bindið, fíla Silver scholar athlete skjöldin og ég fíla þig !!!
Kv frá gettóinu
Árni Þór
Oki Árni Ragg.... þú ert maðurinn!!! ;)
SvaraEyðaÉg er búin að lesa hvert einasta blogg sem þú hefur skrifað síðan að þú fórst út og þú ert snillingur! :)
Hlakka til að fá þig heim suga.....
Love in da house!
Tara
Fáránlega flott rós maður!!
SvaraEyðaHaha er alltaf verið að blasta svona tónlist í botni þarna við sundlaugina? Hver sér um hana... er að fíla stemninguna... og tiger pós gellurnar
Horfði á highlights videoið, heavy gott, skellti commenti á það á youtube. Býst við að það verði meira um Árna Ragg á því á næsta ári
-Pálmar
Árni Þór: Eftir mikla leit af banana stráknum þá fattaði ég loksins hvað þú varst að tala um. Haha hann heitir Josh Yost og þetta var kærastan hans... veit ekki alveg hvað var málið með hana! hehe
SvaraEyðaAnnars takk marr, ég fíla þig líka marrr.
Tara: ÞÚ ERT snillingur. Takk fyrir að lesa... ég er að skrifa þetta fyrir þig.
Ég heimta að þetta sumar verði að minnsta kosti jafn gott og síðasta sumar með snilldar vinahóp okkar frá síðasta sumri.
Mad loves!
Pálmar Ragg:
Það er eiginlega alltaf verið að blasta tónlist þarna. Það eru bara græjur þarna og einhver thug virðist vera að stjórna tónlistinni alltaf. Veit ekki hver það er :)
Árni Ragg á næsta ári... engin spurning
Auðvitað brillerar frændi í skólanum enda veit hann að körfuboltamenn þurfa að nota hausinn líka.
SvaraEyðaSammála með Spartacus. Snilldar þættir.
Kv.
Gummi
Laerdi thetta audvitad af fraendanum sem madur horfdi alltaf a massa Gettu Betur herna i gamla daga.
SvaraEyðaGood times
Arni